Kynning á tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) verða með kynningu á tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, fimmtudaginn 10. apríl frá klukkan 13:00-14:30 og 16:00-17:30, Hamraborg 9, 200 Kópavogi.
Svæðisskipulagið, Höfuðborgarsvæðið 2040, verður sameiginleg áætlun sveitarfélaganna um skipulagsmál og vöxt svæðisins næstu áratugi. Ýmis nýmæli og breytingar eru að finna í tillögunni og ber þar helst að nefna vaxtamörk um þéttbýli höfuðborgarsvæðisins, samgöngu- og þróunarás sem tengir svæðið saman og áhersla á að beina framtíðarvexti á vel tengda miðkjarna og þróunarsvæði.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja fundinn og kynna sér tillöguna. Tillagan ásamt fylgigögnum eru einnig aðgengileg á heimasíðu verkefnisins. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skrifstofu SSH Hamraborg 9, 200 Kópavogi eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. til og með 20. apríl 2014. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.