Á annað hundrað manns ræða framtíð höfuðborgarsvæðisins
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir íbúafundi sem fer fram laugardaginn 9. nóvember nk. frá kl. 10:00 - 14:30 í Menntaskólanum í Kópavogi, Digranesvegi 51.
Umfjöllunarefni fundarins er nýtt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið, sem mun marka stefnu um þróun byggðar á svæðinu fram til ársins 2040.
Á fundinum verður verkefnið kynnt, bæði þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og valkostir um þróun byggðarinnar.
Í framhaldinu ræða íbúar saman í hópum undir leiðsögn borðstjóra. Þar verður glímt við spurningar sem snerta höfuðborgarsvæðið og þróun þess, svo sem:
- Hvernig stuðlum við að því að höfuðborgarsvæðið verði aðlaðandi og eftirsóknarvert til búsetu? Hvað hefur gott borgarsvæði til að bera?
- Á höfuðborgarsvæðið að vaxa inn á við eða út á við? Hverjir eru kostir þess og gallar að ný íbúðarsvæði verði á jaðri svæðisins eða innan núverandi byggðarmarka?
Mikilvægt er að sveitarfélögin sem standa að svæðisskipulaginu fái hugmyndir og sjónarmið íbúa við mótun þess. Farin var sú leið að bjóða íbúum á höfuðborgarsvæðinu sem valdir voru í slembiúrtaki, þar sem gætt var að jafnri dreifingu búsetu, aldurs og kyns.
Með nánari upplýsingar er hægt að snúa sér til Hrafnkels Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins, með tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 892 2698