Auglýsing um drög að matsáætlun

Verkefnastofa Borgarlínu kynnir drög að matsáætlun vegna fyrstu lotu Borgarlínu, Ártúnshöfði – Hamraborg.
Í drögunum er m.a. gert grein fyrir:
• Forsendum og markmiðum Borgarlínu
• Framkvæmdum vegna Borgarlínu og tillögu að stöðvum
• Hvernig staðið verður að vinnu vegna mats á umhverfisáhrifum
• Umhverfisþáttum sem kunna að verða fyrir áhrifum
• Gögnum og rannsóknum sem lögð verða til grundvallar matinu

pdf button Drög að matsáætlun

Drögin eru einnig aðgengileg á vefsíðu Borgarlínunnar, www.borgarlinan.is. Þar er einnig vefsjá um verkefnið og matsáætlunina. Þar er jafnframt hægt að koma á framfæri ábendingum og merkja þær á kort.

Þau sem vilja koma á framfæri ábendingum um verkefnið og umhverfismatsvinnu skulu senda skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drög að matsáætlun á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða Borgarlínan, Hamraborg 9, 200 Kópavogur. Jafnframt er hægt að senda ábendingar í vefsjánni. Verkefnastofan hvetur alla til að kynna sér verkefnið og koma á framfæri ábendingum um framkvæmdina.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 9. júní n.k.